Hallgrímur Pétursson og Passíusálmarnir

Passíusálma Hallgríms Péturssonar (1614–1674) hefur þjóðin lesið og sungið á hverri föstu í meira en þrjár aldir.

Hér eru sálmarnir allir fimmtíu með orðskýringum, píslarsagan sem þeir fylgja, eiginhandarrit skáldsins, gömlu lögin við sálmana og saga þeirra í útgáfum og útvarpi.

Titilsíða eiginhandarrits Hallgríms Péturssonar að Passíusálmunum, JS 337 4to, blað 1r: „Historia pínunnar og dauðans Drottins vors Jesú Christi … Anno 1659. Hallgrímur Pétursson p.“

Úr fórum Landsbókasafns

Passíusálmahandritið

Passíusálmarnir eru varðveittir í eiginhandarriti Hallgríms. Það er einn mesti dýrgripur Landsbókasafns og er aðgengilegt í heild sinni á handrit.is.

Eiginhandarrit Hallgríms Péturssonar að Passíusálmunum

JS 337 4to: 48 blöð, skrifuð 1659. Hallgrímur er talinn hafa sent handritið Ragnheiði Brynjólfsdóttur í Skálholti í maí 1661. Það eitt hefur varðveist af eiginhandarritum hans að sálmunum.

Skoða handritið: Eiginhandarrit Hallgríms Péturssonar að Passíusálmunum